*SYKURPÚÐI*

....þú færð BROS frá mér í sérhvert sinn sem þú lítur hingað inn...;)

30.11.2005 21:29:49 / helenahrund

djúpt hugsað...

Á morgun get ég sagt: ég á afmæli á morgun...:haha: hahhaha;)


» 112 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 23:06:32 / helenahrund

VIKA Í FYRSTA PRÓFIÐ!!!

úff hvað tíminn er alltof fljótur að líða:whut: eftir eina viku mun ég fara í fyrsta prófið í clausus.. ég er að reyna að hugsa ekki um þetta sem e-ð sem mótar framtíðina- það er of mikil pressa að hugsa solleis, vera bara jákvæður og afslappaður þá reddast allt;) já já- Og Pollýanna er best...:haha::haha: hehe

ég er orðin alveg úber spennt að komast heim um jólin- skreyta, baka og já vinna.. hitta alle sammen:D heima er best..

eftir 2 heila daga á ég afmæli fyrir ykkur sem ekki muna það.. en í dag eiga Elli Bjössi og Arnar Ebenezer afmæli- til hamingju mér það strákar:D alltaf svo gaman að eiga afmæli.. það finnst Mæju Bet ekki en ég held að ég taki spenningin og allt út fyrir hana hehe

vitiði ég geri ekki neitt nema læra svo að ég veit ekki hvurn ansk ég er að reyna að blogga:P ja hérna..

ætla að fara að hunskast til að gera e-ð.. á eftir að henda inn myndum af sálarballinu- það mun gerast í mjög náinni framtíð;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 01:20:06 / helenahrund

punktar

var búin að skrifa ritgerð sem HVARF.. ansk!! en þið fáið helstu punktana aftur..

  • prófin byrja eftir 2 vikur.. ég er pollróleg
  • kannski kemur fríkátið en ég vona að ég nái að halda mér nokkuð góðri:)
  • oogg ég á afmæli eftir 8 daga:D elska að eiga afmæli..
  • er að verða 23 ára.. það er bara alltílagi;)
  • það er mjöög mikið að gera þessa dagana
  • ég er orðin skipulögð- í alvöru:P
  • ég fór á ball með sálinni á síðustu helgi:D
  • ..engan sakaði
  • Gummi stóð sig vel
  • einhverra hluta vegna enda ég alltaf upp við sviðið??
  • ég sakna Eyþórs míns.. finnst ég eiga svo mikið í honum:)
  • en ég veit að hann gleymir mér ekki svooo.
  • hlakka til að knúsa hann um jólin..
  • já ég er komin í jólaskap..
  • Fríða, Marri og Guðrún Inga verða hjá okkur:D jei..
  • svo verða "litlu-jólin" hjá okkur krökkunum á hótelinu- það verður geggjað:D
  • en með minni heppni verð ég veðurteppt hér..
  • það er rétt hjá Láru- það er hægt að bulla endalaust svona..
  • .. en ég ætla ekki að gera það
  • er búin að setja inn myndir af skímó ballinu:D
  • ..kíkið á það..

» 127 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 18:48:12 / helenahrund

áskorun.. pff tek hana í nefið;)

 

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. eignast mann og börn;)
2. eignast St. Bernard hund- Doc jr.:D
3. útskrifast sem hjúkrunarfæðingur
4. fara svo í mastersnám- barnahjúkrun eins og staðan er núna
5. verða betri manneskja
6. fara í fallhlífarstökk.. eða kasski maður láti bara teygjustökkið nægja:P
7. Sættast við lífið eins og það er..

7 Hlutir sem ég get:
1. talað.. stundum non stop:$
2. verið til staðar fyrir vini mína
3. hlegið og haft gaman
4. séð um mig sjálf
5. haldið heimili (já það er ekkert auðvelt höhh)
6. verið dugleg í vinnu
7. á yfirleitt auðvelt með að læra..

7 hlutir sem ég get ekki:
1. hugsað mér lífið ánfjölskyldunnar minnar og vina
2. það er mér stundum alveg ómögulegt að sætta mig við/ fatta að ég get ekki bjargað öllu og látið fólk bara í friði...:$ ..etta kemur..
3. vaskað upp strax eftir matinn- alltaf smá tjill fyrst hehe
4. farið á fætur við fyrsta hanagal
5. hugsað á heimspekilegu nótunum
6. saumað:P
7. fundið e-ð til að skrifa hér

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. BROSIÐ:D:D
2. persónuleikinn
3. augun
4. húmorinn
5. rassinn:P
6. verður að hafa metnað
7. Hárið..

7. frægir sem heilla:
1. Gummi Jóns:D :D
2. Robbie Williams
3. Baltasar Kormákur
4. Vin Diesel
5. Bubbi
6. Ethan Hawke
7. Benjamin Bratt

7 orð/ setningar sem ég nota mikið:
1. ÖFGA
2 herðu..
3. Harpa,viltu koma við hjá mér í fyrramálið?;) hehe
4. ég skil þetta ekki..
5. ég held að ég sé að fá taugaáfall:S
6. neee.. ætla bara að vera heima að læra:P
7. já ok..

7 hlutir sem ég sé núna:
1. tölvuna mína- væntanlega;)
2. skóladót- möppur bækur, glósur..
3. pepsi max flösku:D
4. enjo þurrkumoppustanddæmið..
5. stóóóra sófann minn
6. geisladiskahulstur
7. blóm

» 116 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 01:44:19 / helenahrund

Þetta lag er eingöngu í G...

þetta lag er eingöngu í G
þetta lag er eingöngu í G...
- vitiði hvaða lag þetta er??:haha:

jæja það eru 14 og hálf klukkustund þar til ég mun lenda á ísafjarðarflugvelli:D :D :D jei jei.. ég get engan vegin farið að sofa, er svooo spennt:haha:
fyrsta stopp er hjallastræti 35;) annað stopp hjallastræti 26.. svo hann Eyþór minn;).. og ekki búnað skipuleggja meir..:P

ég er búin að endurskipuleggja ferðatöskuna 3svar:P maður veit aldrei hvað maður á að taka með.. hvernig í ósköpunum á maður að ákveða núna í hverju maður ætlar að vera eftir 2-3 daga.. já þetta er erfitt:D hehe.. það þarf svo sterk bein í að vera ég...

ég er samt bara nýlega komin heim, var hjá dekursnyrtikaffistofu Hörpu:haha: veit sko ekki hvar ég væri án hennar- jú ábyggilega einhversstaðar frosin á leiðinni í skólann (labbandi- já það er miklu kaldara hér en fyrir vestan) með ljótt hár og týnd í augabrúnum.. þú ert bestust Harpa mín umwahh;*

best að fara að koma sér í háttinn.. ekki vill ég nú missa af fluginu:S (ekta ég samt) og þið sem eruð í reykjavíkinni- ef þið hafið ekkert að gera milli 13:00 og 15:15 kíkiði þá á flugvöllinn.. mun vera þar ein og yfirgefin:$ ábyggilega að læra bara...


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 23:46:05 / helenahrund

nohh.. bara 2 sama daginn;)

varð að deila þessum með ykkur...

Saga af þjóðvegi
Íslendingar eru að keyra og svo sjá þeir bíl úti í kanti og sjá að þetta eru útlendingar. Íslendingarnir fara út úr bílnum og segja "Do you need help?"
útlendingarnir svara" no no this is ok"
Íslendingarnir gefa sig ekki og segja "yes yes we are gonna help you"
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Yes we are gonna help you (þeir fara aftur inn í bíl og koma aftur út ur honum með reipi)
Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir: First we are gonna reip you and then we are gonna ýt you...

íslendingar eru snillar.. bwahahaha:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 21:16:17 / helenahrund

já nú er ég sko sátt:)

sátt sátt sátt...
æðislegt þegar svona margir kommenta- u made my day pipol;)

en eins og fyrri daginn þá er nú ekki mikið af mér að frétta, er búin að vera úber (eða öfga:P heh) dugleg að læra því að stefnan er ennþá tekin á Bolungarvík city næstu helgi..jibby:haha:...allir að biðja fyrir góðu nettilboði;)

fór í gærkvöldi til Katrínar í Unupizzu.. mmmm, svo gott;) svo missti ég mig í sjánvarpsglápi- össs.. footballers wifes alveg að meika þa- djö er Tanja ógisslega kúl á kantinum haha;) sækó biatch...

það er róleg helgi framundan- var að klára við að þrífa allt hátt og lágt og svo bara fer ég að læra held ég barasta:P *hóst'* LÚÐOS..aha!!
svo kemur Jón Elí til mín á morgun og þá verður sko PRATTÝÝÝ´.. ehehe.. við ætlum að tjilla saman yfir videó og pizzu..mmm og svo í bíó á sun:D gæti ekki verið betra;)

hlakka til að sjá ykkur vestfirðingana næstu helgi og Guðrúnu Ingu, Fríðu og Marra auddað;) og já hún litla ástin mín- Guðrún Inga kommentaði hjá mér í fyrsta skiptið (hér í færslunni á undan) og skrifaði alveg sjálf *stolt*:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 21:10:33 / helenahrund

Gleðilegan nóvember;)

1. nóvember er mættur á svæðið.. bara mánuður og einn dagur í ammælið mitt:haha: jíhaaa..
sama hvað maður eldist þá er alltaf gaman að eiga afmæli- ég er ekkert gömul heldur (miðað við suma haha) er líka að dikta í vexti og þroska(og er on fire) og út fá kenningum þar á ég nóóóg eftir, er bara á fyrsta aldursskeiði fullorðinsáranna:D unga ég..

en ég er að spá í heimferð 10 eða 11 nóv;) get bara varla setið á mér lengur að fara heim.. þetta verður gott orkuskot fyrir lokasprettinn.. og svo skemmir ekki fyrir að skítamórall verður í Víkurbæ:o yeah beibí..

en spurningin sem brennur á vörum mínum.. hver ert þú?? KVITTIÐI fyrir komuna:klikk: já maður verður stundum bara að beita hörku..

og þetta var fyrir lufsurnar...

» 27 hafa sagt sína skoðun


Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 febrúar
Very important síður;)
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti