Halló halló úff hvað maður er nú latur- nei ég er sko ekki að standa við áramótaheitið mitt en það er sko ennþá hægt að bæta úr því...
stelpukvöld í gær- pizza, idol og funnerí rosa gaman- vorum heima hjá Guðbjörgu í nýju íbúðinni hennar og kíktum svo á Sjallan.. ég hef nú ekki mikið að segja ykkur er nú ekki góð í sögunum þessa stundina- er allavega að fara suður 2.febrúar og ætla þá að skella mér á þorrablót Bolvíkingafélagsins.. já mar stuð..
en núna er allavega þorrablótið hér heima og vá hvað Það er gaman að fylgjast með þessu liði- var það ekki þannig að unglingarnir og þetta unga fólk sem er allt alkar, aumingjar og e´g veit ekki hvað.. hmm, sýnist þetta fullorðna lið ekki vera neitt skárra- það er bara ekki minnst á það bara þegar unga fólkið gerir eikkað af sér þá er það milli tannana á öllum- ég sá allavega að það var verið að "ferja" einn heim um hálf eitt- orðinn "þreyttur"...
eitt sem ég hef mikið verið að pæla í- hafiði séð myndirnar sliding doors og thirteen turning thirty?? allavega þá virðist sem þessir "litlu" hlutir geti skipt sköpum fyrir allt okkar líf- haldiði að það sé svona? eitt atvik geti haft áhrif á það sem við eigum eigum eftir ólifað ég veit ekki- er kannski allt planað fyrir okkur og það er bara misjafnt hvaða leið við veljum; létta eða erfiða?? ég vil trúa því að það sé nú búið að plana þetta fyrir okkur en svo veljum við leiðina- en á endanum þá gerist Það sem okkur er ætlað... hvað finnst ykkur? ég er eikkað voða mikið að velta þessu fyrir mér...
» 3 hafa sagt sína skoðun
jæja.. eitt af mínum áramótaheitum komið af stað jei- ég er svo dugleg.. hreyfingin byrjar svo í jóganu á mánudaginn Það verður nóg að gera næstu mánuði- er í 3 vinnum og svo ætla ég að taka 2 fög í hjúkrun.. úff, þetta verður bara gaman. já já- always look at the bright side of life du du du dududududu du
svo er líka mikið af ferðalögum á næstunni- eins gott að vinna fyrir þeim stefni á Reykjavíkur ferð í byrjun Feb og svo er ég búin að panta far til Mæju Betar minnar 22 mars-31 mars hlakka geggjað til held svo að ég þurfi líka eikkað að skreppa norður í mars æjhh það kemur bara í ljós
kossar og knús
» 5 hafa sagt sína skoðun
ó well.. here it comes!!
ég strengdi nebbla áramótaheit.. vera duglegri að blogga, rækta sjálfa mig og samband við fjölskyldu og vini og svo nottla líkamsræktin sko.. er það ekki eila áramótaheit hjá öllum? það er eikkað svo týpískt áramótaheit- hætta að reykja, hreyfing... eins og hún Dibba okkar strengir alltaf áramótaheit með þessum þvílíku yfirlýsingum hehe! hvernig gengur það elskan? ég stend allavega með þér
jæja ég er byrjuð að vinna aftur eins og maniac.. það er líka bara eins gott money money! ég er nebbla að spá í að fara í heimsókn til Mæsu minnar um páskana en ég veit ekki alveg hvernig það verður því að hún er víst að spá í að koma heim??? hmm.. kemur allt í ljós..
ég er á fullu að setja inn myndir fann loksins eikkað sem virkaði- thanx Eva:* þannig að ég læt ykkur vita þegar þetta er allt ready steady.. ég ætla að halda áfram að liggja uppí sófa með hálsbólguna mína og fartölvuna
» 2 hafa sagt sína skoðun
Heibb heibb
ég er á lífi.. og lofa svaðalegu og suddalegu bloggi annað kvöld hehe ég er nebbla að læra fyrir próf.. en er að deyja úr leti- haldiði að það sé hægt?? alveg ábyggilega..
en hér er alltaf sama blíðan.. snjóþekja yfir allri Bolungarvík!! haha.. þetta er sonna eins og í "gamla daga" þegar mar var að stökkva ofan af húsþökum og sonna gaman.. mig langar út að leika núna núna núna..
en þið.. það er alltaf verið að suða í mér að setja inn myndir og nú vantar mig sko hjálp... eru eikkerjir tölvusnillar þarna?? ég GET ekki sett inn myndir (kann það sko en bara get það ekki) en allavega þá kemur alltaf bara "this page cannot be displayed" blabla... kunniði eikkað á þetta?? hvað á ég að gera??
svariði mér elskurnar.. und like I said tomorrow tomorrow
» 7 hafa sagt sína skoðun