*SYKURPÚÐI*

....þú færð BROS frá mér í sérhvert sinn sem þú lítur hingað inn...;)

10.08.2007 21:12:55 / helenahrund

Allt að gerast...

Jajaja... Versló búin og ég get með sanni sagt að á næsta ári er ég til eyja;) Kemurðu með?? Þetta var samt fínasta verslunarmannahelgin- Pabbi, Fríða, Marri og Guðrún Inga komu og það var náttúrulega baara gaman;) við vorum bara í tjillinu á föstudagskvöldinu, fórum svo í bæinn á laugardeginum í tívolíið og sonna... Guðrún Inga náði að draga mig og mömmu sína í eitt tryllitækið og já ég hélt að ég myndi deyja úr hræðslu á meðan hún öskraði bara "hraðar hraðar vuhúú" hehehe..

svo á laugardagskveldinu fór öll strollan í mat til Ráðhildar og Daða sem er alltaf gaman... svo fór ég í hálfgert víkarapartý heima hjá Eygló og Frigga og ég hef ekki skemmt mér svona vel leeengi- svo var stefnan tekin í Sjallann á Stuðmenn:)

Ég var ein eftir í kotinu á sunnudeginum sem var bara tekin í tjilli... kíkti svo á brekkusöng um kvöldið með Diddú og Jesper hinum danska og þar hittum við Ólöfu og Jónu:) rosa flott.. (en jafnast ekkert á við Þjóðhátíð.....) kíkti svo aðeins út á sunnudeginum með Elmari, Axel ofl..

Eins og ég sagði fínasta helgi- það er bara ekki hægt að bera þetta saman við Þjóðhátið ... og Þjóðhátíðin kallar og kallar og ég ÆTLA ÆTLA á næsta ári:):)

Svo tók hið daglega líf bara við- vinna vinna og já vinna!!! en svo var ég að kaupa mér bíl... ójá:) Gjellubíl- yaris... sjáiði bara:

Algjört kjútípæ hehehe:)

En já planið var alltaf að kíkja vestur um næstu helgi en ég barasta er ekki viss hvað ég geri... því jú sko:
Kostir- fara vestur:  Hitta Familiíuna (Pabbi, amma, Silla, Magga og allir...), Eyþór minn, vinirnir (þeir fáu sem eftir eru), ástarvikuball...

Kostir Rvk: Guðrún Inga 7 ára á föstudaginn og ég hef ekki verið í afmælinu hennar síðan hún var 3 ára, Gunnar Smári 1 árs á miðvikudaginn, systkini mín- pabbi fer svo ábyggilega suður líka, Menninganótt, á fleiri vini þar en fyrir vestan:P (allir farnir suður), styttra að keyra (á nýja bílnum sjáiði til;)),

Já það er spurningin- vestur eða suður??

Heiðdís Dögg skrifaði
sæta mín...er ekki frá því en að það hafi verið meira stuð hjá þér en mér um versló...en skil sko ótrúlega vel að þjóðhátið kalli á þig..gerir það sko líka við mig..=) bara gaman í eyjum.. en til hamingju með nýja gellubílinn þinn skvísa.. síjú..HDS
Þóranna skrifaði
Hæ, hæ! Til hamingju með nýja sæta bílinn þinn. Hann er eitthvað svo mikið þú.............. Sammála þér með Eyjar, þar er sko gaman að vera, á þjóðhátíð allavega :) Um að gera að fara sem oftast meðan tækifæri gefst. Kveðja úr Víkinni Þóranna :)
Hera skrifaði
Hey til lukku með bílinn ;o) ég kaupi mér svona frúarbíl þegar ég verð rík.... hmm líklega langt í það ;o) See ya
Tara Björt skrifaði
Koddu suður... ég er að fara suður:) og hey VIÐ EIGUM ALVEG EINS BÍL:) HAHAHA
Helena skrifaði
Ég fattaði það í fyrradag Tara að við ættum eins bíla hehe:) því við erum náttúrulega laaangflottastar:D ég býst við að fara frekar suður...
Anna Sólveig skrifaði
svo ég geri þetta nú erfiðara fyrir þig;) Gunnar Smári verður fyrir vestan á afmælinu sínu! En við förum svo suður á föstudeginum. En hvenær myndirðu fara af stað? Við sjáumst allaveg sama hvar þú lendir;) kv. Anna og co
Stebba skrifaði
mig langar að fá þig suður;) og við erum skooooo að fara á þjóðhátíð 2008 við höfum hvorugt farið og nú er þetta planið og það er bannað að breyta:) þannig að... allir saman í rvk á menningarnótt og allir saman í eyjum verzló 2008!! gott plan eða hvað:)
Helena skrifaði
Ég er að vinna miðvikudagskvöld og svo þriðjudagsmorgun... þannig að ég myndi aldrei getað verið með krúttinu á 1 afmælisdaginn:S en spurningin er þá að fara á fimmtudaginn og vera fram á mánudag.:D Anna já við sjáumst hvort sem ég fer vestur eða suður..(reikna nú frekar með suður) Stebba- ég tek ykkur á orðinu..bannað að breyta:) (veit samt ekki hvort ég á að þora að fara með þér- ætli maður endi þá ekki bara á Skagaströnd hehe)Sí jú beibí (vonandi á næstu helgi...)
Diddú... skrifaði
AKureyri! pottþett gefa skít í þetta allt og bara hanga hérna:D kannski eflaust taka aukavaktir eða eitthvað skemmtilegt hahahhaha.... ji hvað ég er að brillera hjá þér núna!:*
Hulda skrifaði
Til hamingju með flotta gjellubílinn;) Við misstum af þvílíkri skemmtun í Eyjum um versló og úr því verður sko bætt á næsta ári, það er sko EYJAR 2008;) Ég mæli nú frekar með Reykjavíkinni næstu helgi, það er fullt um að vera t.d tónleikar á föstudeginum á Laugardagsvelli og svo auðvitað menningarnóttin á laugardaginn og þá eru einning tónleikar, ég væri nú alveg til í að fara á þessa tónleika!!! Hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 febrúar
Very important síður;)
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti