*SYKURPÚÐI*

....þú færð BROS frá mér í sérhvert sinn sem þú lítur hingað inn...;)

23.11.2007 10:24:08 / helenahrund

Ég er flutt!!!

nú er ég farin, meinilla farin og búin að vera hehe... sakar ekki að prófa e-ð annað;)

en ég fer ekki langt:

www.helenahrund.bloggar.is

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 14:39:31 / helenahrund

Flutningur???

Ég er komin með ógeð smógeð á þessu umhverfi hér.... spurning um að skipta yfir á bloggar.is??? Hvað finnst þér...

Það er blogg í fæðingu... ójá!!! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 21:44:13 / helenahrund

og þá er komið að máli málanna....

Jæja....

búin að skanna djammið á skaganum.. og fyrir forvitna- uuu já það var fínt;) við vorum heima hjá Elísubet og fórum svo á Mörkina, enda ekki mikið annað að velja.. jebb held að það sé meira líf í Bolungarvíkinni hehe en þetta var fínt, þakka fyrir gott kvöld stúlkur;) Fer að henda inn myndum í nánustu framtíð, þarf fyrst að endyrnýja aðganginn minn ..:$

Ég er allavega mjög sátt með verknámið mitt hérna- búin að setja upp fullt af æðaleggjum, sprauta honum, fullt af verklegum þáttum og fuuuuulllt fleira og svo öðlast náttúrulega heilmikla reynslu;) frábært starfsfólk þarna og já bara gott og gaman:D svo náttúrulega mjög gott að vera með Sjonna, Önnu og prinsinum mínum;)

Pabbi kom í bæinn og skagann auddað líka... við kíktum í ma til Gunnu og Gumma og svo kíkti ég á Hvanneyri til hennar Huldu minnar svo að það er búið að vera nóg að gera hjá mér fyrir utan það að reyna að læra smá:P svo á síðasta föstudag fór ég til Fríðu fríðu og ég, Friða og Guðrún höfðum það voða nææææs me pizzu, video og fínerí... gott að sklappa af:D svo fór ég aftur upp á skaga á lau og þá drifum við Anna okkur í hvítvínskvöld og tileyrandi fínheit til Gunnu og vá það var geggjað næs og gaman:D

ég mun svo pakka niður ölllu mínu dóti í kveld og setjast að hjá Fríðu og co í 2 vikur;) jebb... skagatíminn búinn- djö er þetta fljótt að líða. en við tekur 2 vikna verknám a geðdeild á landsspítalanum;) það verður fróðlegt....

við las víkos gellos ætlum svo að hittast á morgun og borða saman dýrindismat og spila og hafa gaman og kannski kíkja í bæinn á eftir- hvur veit!! ætlum að hittast heima hjá Lilju- nema Stebba, Bina og Ásta María komast ekki:( en við hittumst nú aftur... vá Ásta María og Lára eru að fara að eiga bara núna- já settur dagur á þrðjudaginn:D :D svooo spennt... trúi ekki að krílin séu að koma:)

Vitiði- er komi í þvílíka jólaskapið8| wf... vona að Hulda mín sé það líka því mig langar að fara að skreyta snemma í ár...:D hehe

Ætlaði bara að henda inn nokkrum orðum- er að passa prinsinn en Sjonni kominn heim;) þarf að fara að pakka jeijj

Kossar, knús og koksleikur til ykkar allra en þó sérstaklega Ingu;) Luv ja

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 21:54:39 / helenahrund

Akranes city!!

Er hægt að vera duglegri í blogginu en ég???

ég er komin á Akranes - keyrði eftir vinnu á sunnudaginn og byrjaði í verknámi strax á mánudagsmorgnuninn;) jájá engin miskunn- vorkunn- forkunn...

mér líst allavega hellíti vel á þetta- búin að stinga marga og svona;) hehe... þetta er voða gaman gaman. Maður er samt mjög þreyttur á kvöldin..  fer til Sjonna, Önnu og Gunnars eftir vinnu og hangi þar svona þar til litli prins fer að sofa og þá reynir maður að myndast við að læra e-ð:$ reyna allavega...

Ég fór svo í mat til Elísubetar í gær og við skelltum okkur svo á tónleika með engum öðrum en honum Gumma Jóns:haha:  je beibí- Gummi beibí;) alltaf gaman...

ég verð s.s á skaganum í rúmar tvær vikur í viðbót og fer svo til Rvk í tvær vikur og svo norður... flakkið á manni:P

Mörkin um helgina- Elísabet og Eva ætla kynna mig fyrir djamminu á Akranesi:D:D 


» 17 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 18:54:13 / helenahrund

Hann á afmæli í dag...

..hann á afmæli hann Pabbi minn;) hann á afmæli í dag... já bestasti pabbi minn er 58 ára í dag kjallinn:D Til hamingju með það elsku besti pabbi minn- þú ert bestur og ég veit sko ekki hvar ég væri án þín- ábyggilega í ræsinu:P hehe..

Love jú;* KOSSAR OG KNÚS

Þarna er kallinn með afabörnin tvö :D

Og svo við- ég að reyna að kenna kjallinum að pósa-KJÖÖÖT;)

og svo Inga mín- hélt að ég þurfti nú ekki að taka það fram að Akureyri sökkar án ykkar og skólinn þ.a.l líka... SAKNA YKKAR - KOMIÐI HEIM!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 19:19:34 / helenahrund

Dúddugu papakassa og einn dúspenna...

Ahhh ég var að horfa á Nóa Albínóa áðan... mig langar heim- annars hef ég nú heyrt að þar sé frekar dautt þessa dagana:P :P

Sprellið var auðvitað skemmtilegt- held samt að ég sé að verða gömul, meikaði ekki lengur en hva hálf tvö!!!! já ég eiginlega varð þá að fara heim- já varð:$... búin á því eftir 14 tíma djamm og geðbilaða skólaviku... 

...næsta skólavika verður kreisí en er líka að vísu síðasta vikan fyrir verknám!!!!!8| svo eftir verknám eru e-r 6 dagar í skólanum og svo bara próf!

Allavega eftir 6 daga fer ég í burtu frá Ak í heilar 5 vikur- já já ojá:D get ekki beðið eftir að komast aðeins frá þessu "venjulega" lífi mínu- skóli, læra, skóli, vinna, læra, skóli... já no fun in that... Hitta familiuna og gaman:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 18:31:17 / helenahrund

SPRELLMÓT

LIVERPOOL BEIBI

CARLSBERG BEIBÍ

..HLUTI AF FÁNANUM MÍNUM....OG ÞETTA ER TILEINKAÐ DAGNÝJU


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 20:29:21 / helenahrund

Allt eins og það á að vera...

Jæja best að skella inn einni færslu svo að þessi bitra hér að neðan verði ekki það fyrsta sem þið sjáið... er annars á leiðinni á bókasafnið að læra;) já já- það er stuð á bókó

fyrir rúmri viku var bekkjarparty hjá okkur og 80´s þema... djö var gaman;) skelltum okkur svo í sjallann og dönsuðum af okkur rassinn á Páli Óskari...

Eva var náttúrulega langflottust í gull MC Hammer buxunum:) já hún á btw ammæli í dag- til hamingju aftur elskan;*

LANGFLOTTASTAR!!

Ég og Heiðdísin...

Þessi svipur var sko allsráðandi....:P og hann er dónó...

...styttist í sprellmótið!!:haha::haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 18:08:32 / helenahrund

LOOOSING MY SENSES!!

Ég er að bilast og bugast og mig vantar knús:cry: Ég vissi að þetta yrði erfitt ár en úff úff úff- þetta er tú mötsj!

er búin að vera hér síðan 9 í morgun og já er ekkert á leið heim held ég- svona eru allir dagar.. MIG VANTAR KNÚS!!

P.S Takið þessu með fyrirvara þar sem þessi færsla var skrifuð í stundarbrjálæði á bókasafninu á Háskólanum á Akureyri

Takk fyrir!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 12:22:34 / helenahrund

London Beibí

Jæja ferðasagan...:)

Við lentum á Hethrow um átta leytið þannig að við vorum ekki komin upp á hótel fyrr en um 22. Ekki mikið gert það kvöldið- bara smá rölt um nágrennið og svo opnuð hvítvínsflaska (fyrsta af mörgum þessa ferð...)

Vöknuðum snemma á föstudagsmorgninum á stefnan var tekin á Oxford street... Mmmmmm:D byrjuðum á að versla í HM og sendum svo Marra heim með pokana (hehe) og fórum svo í Primark- sem var btw geggggjuð búð og já ég verslaði gjörsamlega frá mér allt vit. Við komum þaðan út með 8 stóóóra poka- sem já Marri var sendur með heim meðan við fengum okkur bjór á næsta kaffihúsi hehehe:D til þess eru þeir þessir karlmenn í verslunarferðunum... er það ekki annars? Já föstudagurinn fór að mestu í verslerí og ég var e-ð að reyna að gellast og endaði því með blöðru á tásunum og bjúg (takk fyrir pent) á stóru tánni- já bara eina tá!! Verslunarbjúgur... við Fríða töluðum einnig um að við uppgötvuðum nýja vöðva í ferðinni- verlsunarvöðva:P (sömu vöðvar og karlmenn nota til að...já;) við vorum ekki komin aftur upp á hótel fyrr en um 23 og þá var bara lagst í leti (með hvítvín auðvitað;) og hátt undir fótum til að losna við bjúginn hehe;)

Á laugardagsmorgninum fórum við Fríða snemma af stað til að reyna að finna Blackwells bókabúðina- ætluðum að versla nokkrar skólabækur. Það fór ekki betur en svo að við villtumst allsvakalega og það fóru já 2-3 tímar í að finna hana:S ansk... svo fórum við í eina búð í viðbót og fengum þá alveg nóg af búðarrápi og ákváðum að gerast túristar það sem eftir var af ferðinni...

Við skelltum okkur í svona bus sightseeing tour og sáum já helstu staði London á 2 tímum- þetta er ekkert smá falleg borg;)

Á sunnudeginum var vaknað snemma- enda ekki verið að fara til London til að sofa:P Þá fórum við á Madame Tussauds vaxmyndasafnið og það var geggjað gaman, svo fórum við að fá okkur e-ð i gogginn eftir það og svo var stefnan tekin í London Eye- þar sem ofur lofthrædda manneskjan ég stóð mig eins og hetja8) það er algjör snilld að sjá London úr þessu apparati og vá hvað þetta er fallegt... eftir það ákváðum við að setjast e-sstaðar og fá okkur kaffi/ bjór- settumst inn á e-ð kaffihús þarna þar sem kom svo í ljós að var Japanskur Take That bar:D hehehe- það var bara diskurinn með Take That í græjunum og mér var nú hugsað til Jónu og hversu kreisí við vorum..:) en ég sem sagt fílaði mig mjög vel þarna..:) enduðum túristadaginn okkar á að skoða Buckingham Palace og fórum svo út að borða á Angus steak house mmmm-voða gott:) svo þurftum við bara að fara heim og pakka niður og já ég kom með alveg góðum helmingi meira heim en ég fór með út..:O dadaramm...hefði þurft aukaferðatösku en þetta reddaðist!!

Við Marri fórum svo heim á mánudagsmorgninum- Fríða var eftir og fór á ráðstefnu í Oxford. En við vorum allavega lent á klakanum um 15 og ég knúsaði bara aðeins hana Guðrúnu mína og stoppaði svo í mat á skaganum og knúsaði Gunnar minn:) svo var bara keyrt norður og vá var nú orðin vel þreytt eftir þetta allt saman.

Svo núna er raunveruleikinn tekinn aftur við- endalaus skóli og vinna. Erum í skólanum til fjögur eða fimm á daginn til að klára alla fyrirlestra því að svo tekur við 5 vikna verknám:) vuhú... ég fæ sem sagt að fara á Akranes (loksins) á handlækningadeild í 3 vikur og svo geðdeild á landspítalanum í 2 vikur. Flott að fá að knúsa litlu krúttin mín svooo lengi..:) Svo eftir áramót fer ég á lyfjadeild á landspítalanum (sótti um krabbameinsdeild) og svo kvennadeildina hér fyrir norðan... já það er nóg að gera.!!;)

jæja ég á víst að vera að hlusta á kennarann held ég- það eru komnar inn myndir á myndasíðuna: www.123.is/sluttynurse, hún er ekki læst lengur og njótið vel:)

ég vill fá kvitt frá þér:D


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 09:04:11 / helenahrund

3 dagar...

BARA 3 DAGAR... BEIBÍ;)

Jább allt að gerast- eða ekki neitt kannski. Þegar ég er spurð hvað sé að frétta þá get ég aldrei sagt neinar fréttir!! það er ekkert að gerast í mínu lífi (fyrir utan London beibí;)- þá er ég bara í skólanum, vinna, læra... já kannisti við þetta- svona algjört rólegheitatímabil...

Annars sé ég fram á bilaðan vetur- það er strax nóóóg að gera í skólanum, svo er maður að vinna og að berjast við að eiga eitthvað líf með:P

Svo hittumst við Ellógellurnar um helgina og vá hvað það var gaman- við hittumst heima hjá Gullu og fórum svo á Papaball:D allir í góðum sköpum á pöpum... er það ekki;) það vantaði að vísu Dagný og Söndru þannig að við verðum að hittast fljótlega aftur..:D

Svo á hún Ásta María afmæli í dag- já hún er 24 ára þessi fagra snót;) til hamingju með afmælið elskan mín;* 

Jæja best að fara að gera e-ð af viti...Skrifa aftur eftir London BEIBÍ!!:D :D :D

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 10:38:28 / helenahrund

í Skólanum í skólanum;)

Blessuð;)

Líf mitt hefur einkennst af vinnu, flensudrullu og já meiri vinnu síðan ég kom aftur norður...

En lífið var ljúft í Reykjavíkinni- Prinsessan mín varð 7 ára:D vuhú- hún er orðin alltof stór:P og í tilefni fengum við jammí veitingar og skelltum okkur í keilu þar sem I got my ass kicked af 6 og 7 ára stúlkum8| ójá (mér til varnar þá fengu þær að nota hlið en ekki ég...) Svo var bara hangið með familiunni, vinum, skellt sér á heljarinnar djamm og áður en ég keyrði aftur norður á mánudeginum náði ég dýrindis afmælisveislu hjá 1 árs prinsinum;)

Skólinn er byrjaður- fyrsti dagurinn í dag og þetta leggst bara hellíti vel í mig:) ójá.. ég er bara ekki að trúa því að ég sé komin á 3 ár!! úfff... það er alltof stutt eftir... ég er orðin svo fullorðin!!

10 DAGAR Í LONDON... je beibí;) djö verður það gegggggjað...

 

Læt fylgja myndir- auðvitað;)

Erum svo kúl!!

Hérna er 7 ára prinsessan mín (komst ekki í tölvu á afmælisdaginn til að tileinka henni færslu:P) Bara aftur til hamingju með afmælið elskan...

Og svo á hún Lára mín afmæli í dag;) Til hamingju elsku Guglkegglingin mín;*

Such a bjútíkvín með uppáhaldsdrykkinn;) Luv ja

Og svo við saman (auðvitað verð ég líka að vera með...:))

á maður ekki að vera að læra???


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 00:01:56 / helenahrund

Gunnar Smári 1.árs;)

Jæja Klukkan er orðin tólf og þá er víst kominn 15. ágúst og það þýðir bara eitt.... Gunnar Smári minnsti prinsinn minn er 1 árs í dag:D :D TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU GULLIÐ MITT;* (ekki það að hann lesi þetta- Anna og Sjonni.. þið skilið kannski kveðjunni;)) Litli prinsinn verður í Víkinni fögru og það er nú ekki amalegt að eyða fyrsta afmælisdeginum þar....

ég trúi varla að það sé komið 1 ár síðan þessi litli sólargeisli kom í heiminn- hann er svo yndislegur þessu gullmoli;)

FLOTTASTUR;) 

Sjáiði bara litla Sykurpúðann:D :D mússí mússí...

Jæja-ég er loksins búin að ákveða mig- já ég ætla suður um helgina;) því miður fyrir ykkur sem eruð fyrir vestan (hehe:P) og til hamingju þið sem eruð fyrir sunnan:) hver ætlar svo að leika við mig um helgina????


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 21:12:55 / helenahrund

Allt að gerast...

Jajaja... Versló búin og ég get með sanni sagt að á næsta ári er ég til eyja;) Kemurðu með?? Þetta var samt fínasta verslunarmannahelgin- Pabbi, Fríða, Marri og Guðrún Inga komu og það var náttúrulega baara gaman;) við vorum bara í tjillinu á föstudagskvöldinu, fórum svo í bæinn á laugardeginum í tívolíið og sonna... Guðrún Inga náði að draga mig og mömmu sína í eitt tryllitækið og já ég hélt að ég myndi deyja úr hræðslu á meðan hún öskraði bara "hraðar hraðar vuhúú" hehehe..

svo á laugardagskveldinu fór öll strollan í mat til Ráðhildar og Daða sem er alltaf gaman... svo fór ég í hálfgert víkarapartý heima hjá Eygló og Frigga og ég hef ekki skemmt mér svona vel leeengi- svo var stefnan tekin í Sjallann á Stuðmenn:)

Ég var ein eftir í kotinu á sunnudeginum sem var bara tekin í tjilli... kíkti svo á brekkusöng um kvöldið með Diddú og Jesper hinum danska og þar hittum við Ólöfu og Jónu:) rosa flott.. (en jafnast ekkert á við Þjóðhátíð.....) kíkti svo aðeins út á sunnudeginum með Elmari, Axel ofl..

Eins og ég sagði fínasta helgi- það er bara ekki hægt að bera þetta saman við Þjóðhátið ... og Þjóðhátíðin kallar og kallar og ég ÆTLA ÆTLA á næsta ári:):)

Svo tók hið daglega líf bara við- vinna vinna og já vinna!!! en svo var ég að kaupa mér bíl... ójá:) Gjellubíl- yaris... sjáiði bara:

Algjört kjútípæ hehehe:)

En já planið var alltaf að kíkja vestur um næstu helgi en ég barasta er ekki viss hvað ég geri... því jú sko:
Kostir- fara vestur:  Hitta Familiíuna (Pabbi, amma, Silla, Magga og allir...), Eyþór minn, vinirnir (þeir fáu sem eftir eru), ástarvikuball...

Kostir Rvk: Guðrún Inga 7 ára á föstudaginn og ég hef ekki verið í afmælinu hennar síðan hún var 3 ára, Gunnar Smári 1 árs á miðvikudaginn, systkini mín- pabbi fer svo ábyggilega suður líka, Menninganótt, á fleiri vini þar en fyrir vestan:P (allir farnir suður), styttra að keyra (á nýja bílnum sjáiði til;)),

Já það er spurningin- vestur eða suður??


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 19:36:41 / helenahrund

Sjáðu hvernig hún er...

... sjáðu hvað hún er ber, sjáðu allt sjáðu allt sem hún gerir!!
Já minns er að þrífa með sálina í græjunum;) Þeir bliva alltaf..

Snilldar staffadjamm að baki- enduðum allar holgóma og ógeðslega gaman;) Bíð bara spennt eftir næsta...

Pabbi minn ætlar að koma norður um versló:) og líka Fríða, Marri og Guðrún Inga svo að ég mun hafa það mjög gott í faðmi fjölskyldunnar:D

En hún Inga mín á afmæli í dag- já já sykurpúðinn minn;) Til hamingju með daginn sæta... þúsund kossar frá mér;*

Já þurfti sko að hafa fyrir því að finna mynd- Þær eru nebbla til ófáar já segjum "kjánalegar".. þarna eru ég, Inga og Jóhanna á Reðursafninu;)

Eigiði góða helgi gott fólk:)

Ég verð á elló eins og allar aðrar helgar.... 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 febrúar
Very important síður;)
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti